Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Auglżsing

Ašrir bloggarar

Könnun

Į aš fara eitthvaš śt ķ sumar

Leit

Glešilega Pįska :)

07. aprķl 2007 klukkan 12:41
ég veit að það langt síðan að ég bloggaði

Var ekki einu sinni búinn að blogga um að Silla hafi orðið 25 ára í febrúar, lélegur ég

en gleðilega páska  Brosandi
Raggmęster
1 athugasemd

Langt sķšan mašur bloggaši

05. janśar 2007 klukkan 22:46
Það er svo á þessum degi sem maður hugsar afhverju í andskotanum 365 hafi keypt Xfm og Kissfm. Það var í raun bara til þess að leggja þessar tvær stöðvar niður, en hver er í raun gróðinn af því, eyða peningum í að útrýma einhverju góðu. Núna er engin Snorralaug eða Mín skoðun til að hlusta á, tónlistin var betri á Xfm en á Xinu. Afhverju var ekki bara unnið að því að hafa samkeppni á þessum markaði þó hann sé ekki stór, það eru samt margir sem vilja halda áfram að hlusta. Spurningin er núna hvort að 365 reyni aftur að leggja niður Xið þar sem þeir eru einir á markaði, það er ekki eins og þeir hafi ekki reynt það oft áður. Það hafa bara alltaf verið einhverjir tilbúnir að stofna nýja útvarpsstöð og alltaf gerist það sama 365 byrjar aftur í samkeppni við þá, kaupir þá út og reynir að leggja útvarpsstöðina niður. Afhverju sleppa þeir því ekki að taka þátt í þessum markaði og leyfa fólki að hlusta á það sem það vill!!! Í staðin fyrir að vera leggja útvarpsstöðvar alltaf niður...
Raggmęster
Engin athugasemd

Prófin eru bśin :)

16. desember 2006 klukkan 02:53

Ég er ekki búinn að vera að blogga undanfarið, en það er vegna þess að ég var í próflestri. En núna er maður búinn að fara í 4 próf og kominn í jólafrí frá skólanum...

Ég hef ekki mikið að segja þessa stundina þannig að ég ætli bara að láta montið um að ég sé kominn í jólafrí duga í bili :)...

Raggmęster
Engin athugasemd

Snjór ķ stašinn fyrir ręktina

19. nóvember 2006 klukkan 20:13
Það var dálítið af snjó sem kom niður í nótt, sem fékk mig til þess að vakna fyrir klukkan 9 í morgun og fara hjálpa Sillu að komast í vinnuna. Þegar komið var yfir hádegi, þá var ráðist í að moka stéttina og tröppurnar svo þægilegra væri að komast inn. Það var leiðinlegt að vaða skaflana upp að hné til að komast út. Síðan var farið að huga að bílnum hans Salla sem ég er með afnot af, ætli að ég hefi ekki verið í kringum klukkutíma að losa um hann, þar sem skaflarnir sem voru búnir að safnast í kringum hann voru svo stórir. Ég þarf allavega ekki að fara í ræktina í dag, eftir allan þennan mokstur...
Raggmęster
Engin athugasemd

Internet Explorer

11. nóvember 2006 klukkan 05:56

Ég var eitthvað að uppfæra internet explorerinn áðan og þá var síðan mín eitthvað fötluð við það, þannig að ég ákvað bara að breyta útlitinu tímabundið (kannski til framtíðar)...

Annars er ekki mikið að gerast hjá karlinum, maður er bara rólegur heima á föstudagskvöldi á meðan Silla er í bænum að skemmta sér...

Ég er líka að fara keppa í brenniboltamóti á morgun og síðan er ég að dansa í skemmtiatriði um kvöldið. Þá verður það kannski öfugt, ég að skemmta mér á meðan Silla verður bara í rólegheitum að gera eitthvað...

Hef ekki mikið meira að segja í augnablikinu, þannig að ég kveð bara í bili Svalur...

Raggmęster
Engin athugasemd

Žaš er leikur aš lęra

04. nóvember 2006 klukkan 22:04

Í einhverju lagi hljóðar það svo að það sé leikur að læra. En ég myndi segja að það sé vinna, var það kannski ekki þegar maður var yngri en nú á dögum er þetta bara vinna...

Annars það sem er að frétta af leiknum, þá erum við Silla búin að fara og tala við Úrval-Útsýn um hvenær við getum farið. Dagsetning sem okkur fannst heppilegust var fyrsta helgin í janúar, en þá er bikarhelgi og það verður að koma í ljós hvort að Man Utd. fá heimaleik eða ekki. Ef þeir fá heimaleik þá förum við líklegast á þann leik, en ef þeir fá útileik, þá erum við að huga að því að fara á Man Utd.-Charlton eða Man Utd.-Aston Villa kemur betur í ljós um næstu mánaðarmót þegar það verður dregið í bikarnum...

Raggmęster
2 athugasemdir

Ég er į leišinni į leik ķ enska boltanum

23. október 2006 klukkan 22:31

Það vildi svo til að það var hringt í mig þegar ég var á leið úr skólanum og mér tilkynnt að ég hefði unnið ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum. Þetta var leikur fyrir þá sem nota safnkortið reglulega og viti menn þá var ég bara fyrstur til að vinna hjá þeim. Beðinn um að vera í auglýsingu og eitthvað fyrir þau, bara ágætis fréttir þegar maður er bara á leið heim úr skólanum Svalur. Til að sjá á svart og hvítu klikkið hér...

Raggmęster
12 athugasemdir

Hlutir aš gerast

19. október 2006 klukkan 22:28
Það er búið að vera sitthvað í gangi hjá mér síðan að síðasta færsla kom. Ég er t.d. búinn að fara í tvö próf síðan þá...

Það var kíkt í vísindaferð til Egils á föstudaginn, þar sem maður var að smakka % drykki, síðan var skellt sér á Októberfest og minglað við fólk og hitti Sillu eftir að hún hafi verið með sínu fólki. Þegar okkur Sillu fannst vera komið nóg, þá fórum við heim á leið (klukkan að verða 23, við erum ekki orðin gömul ennþá)...

Daginn eftir var það afmæli hjá Ingunni hans Vigga og var maður í góðum fíling á Hressó til að byrja með. Silla fór heim snemma, en við Viggi máluðum bæinn rauðan til að verða hálf sex. Langt síðan að ég hef verið svona lengi á djamminu...

Annars kíktum við Silla í bíó á þriðjudaginn, þar sem við fórum að sjá Hetjumynd eða World Trade Center, þetta var átakanleg mynd og vel gerð. Veit ekki alveg hvað ég get sagt um hana annað en að ég gef henni svona þrjár til þrjár og hálfa stjörnur. Alveg fín mynd til að horfa á...
Raggmęster
1 athugasemd

Bķllinn

11. október 2006 klukkan 02:35
Það er eitthvað við Opelinn sem ég er ekki nógu sáttur með, ég veit ekki alveg hvað það er. Það er bara eitthvað við hann sem ég er ekki að fíla, ég veit ekki alveg hvað það er, en mér finnst hann bara ekki vera minn. Það er eitthvað við hann sem segir mér að hann sé ekki alveg minn og mér líður eins og hann sé bara eitthvað bráðabirgða. Ég bara get ekki útskýrt tilfinningu mína betur en það. Að öðru leiti er þetta fínn bíll, það er alveg fínt að keyra hann og ég á eftir að vera að keyra á honum áfram, var bara að hugsa upphátt hérna á netinu...
Raggmęster
2 athugasemdir

hmmm

08. október 2006 klukkan 01:50
Ég var að fara að horfa á landsleikinn áðan, en þá var eitthvað vesen með að Sýn var ekki að sýna neitt, það var ekki fyrr en 30 mín voru búnar af leiknum og þá var staðan orðin 3-0 fyrir Lettum. Þannig að áhuginn fyrir leiknum var ekki sérlega mikill. En fylgdist þó með honum það sem eftir var og ekki er hægt að segja að þetta hafi verið skemmtilegur leikur fyrir okkur Íslendinga. En fyrir mitt leyti var þetta ósanngjörn úrslit af því sem ég sá, mér þótti þetta vera of stór sigur hjá Lettum þar sem þetta varð jafnari leikur heldur en markatalan segir til um...
Raggmęster
Engin athugasemd