Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Aðrir bloggarar

Könnun

Á að fara eitthvað út í sumar

Leit

Snjór í staðinn fyrir ræktina

19. nóvember 2006 klukkan 20:13
Það var dálítið af snjó sem kom niður í nótt, sem fékk mig til þess að vakna fyrir klukkan 9 í morgun og fara hjálpa Sillu að komast í vinnuna. Þegar komið var yfir hádegi, þá var ráðist í að moka stéttina og tröppurnar svo þægilegra væri að komast inn. Það var leiðinlegt að vaða skaflana upp að hné til að komast út. Síðan var farið að huga að bílnum hans Salla sem ég er með afnot af, ætli að ég hefi ekki verið í kringum klukkutíma að losa um hann, þar sem skaflarnir sem voru búnir að safnast í kringum hann voru svo stórir. Ég þarf allavega ekki að fara í ræktina í dag, eftir allan þennan mokstur...
Raggmæster
Engin athugasemd

Internet Explorer

11. nóvember 2006 klukkan 05:56

Ég var eitthvað að uppfæra internet explorerinn áðan og þá var síðan mín eitthvað fötluð við það, þannig að ég ákvað bara að breyta útlitinu tímabundið (kannski til framtíðar)...

Annars er ekki mikið að gerast hjá karlinum, maður er bara rólegur heima á föstudagskvöldi á meðan Silla er í bænum að skemmta sér...

Ég er líka að fara keppa í brenniboltamóti á morgun og síðan er ég að dansa í skemmtiatriði um kvöldið. Þá verður það kannski öfugt, ég að skemmta mér á meðan Silla verður bara í rólegheitum að gera eitthvað...

Hef ekki mikið meira að segja í augnablikinu, þannig að ég kveð bara í bili Svalur...

Raggmæster
Engin athugasemd

Það er leikur að læra

04. nóvember 2006 klukkan 22:04

Í einhverju lagi hljóðar það svo að það sé leikur að læra. En ég myndi segja að það sé vinna, var það kannski ekki þegar maður var yngri en nú á dögum er þetta bara vinna...

Annars það sem er að frétta af leiknum, þá erum við Silla búin að fara og tala við Úrval-Útsýn um hvenær við getum farið. Dagsetning sem okkur fannst heppilegust var fyrsta helgin í janúar, en þá er bikarhelgi og það verður að koma í ljós hvort að Man Utd. fá heimaleik eða ekki. Ef þeir fá heimaleik þá förum við líklegast á þann leik, en ef þeir fá útileik, þá erum við að huga að því að fara á Man Utd.-Charlton eða Man Utd.-Aston Villa kemur betur í ljós um næstu mánaðarmót þegar það verður dregið í bikarnum...

Raggmæster
2 athugasemdir